Entry: Forseti Wednesday, March 01, 2006



 

A-riðill Unnir Tapaðir Stig +/-
1  Forseti 4 1 41
2  Hafnarmenn 3 2 17
3  FC Moppa  3 1 11
4  O.B. Valur 1 4 -12
5  Hrafnarnir 1 4 -57
B-riðill Unnir Tapaðir Stig +/-
1  Bananar 4 0 61
2  Glói 3 2 10
3  Vatikanið 3 2 5
4  Stimplarnir 1 4 -33
5  ÍA oldboys 1 4 -43

Í vetur hef ég verið að spila í Körfuboltamóti í Fífunni ásamt valikunni liði afreksmanna undir nafninu Forseti.  Mótið er þannig upp sett að liðunum 10 er skipt upp í tvo riðla, eins og sést hér að ofan, og leikirnir spilaðir á föstudagskvöldum.  Hver leikur er 2 x 16 mínútur.
Í þónokkur ár höfum við félagarnir hist úti á Álftanesi á laugardögum og spilað körfubolta.  Þess má geta  að þessar æfingar hafa verið þær skemmtilegustu körfuboltaæfingar sem ég hef tekið þá í síðan á Eiðum 96 -97ef ekki síðan á Fellavelli fyrir um 10 árum.
Eins og sjá má á töflunni hér að ofan þá erum við efstir í A-riðli og vantar þarna inn síðustu umferð þar sem við slóum stigamet þegar við skoruðum 60 stig í sigri okkar á FC Moppu.  Þess má geta að ég skoraði ekki eina einustu körfu í þessum leik!
Ásamt mér, skipa lið Forseta; Finnur.tk (Huginn Fellum), Raggi Arinbjarna (SE), Stebbi Arinbjarna (SE), Gummi Ármanns (HR, Grindavík),  Sveinn Guð (UMFB), Gutti (SE), Siggi (frændi Gutta?), Skoppi (bronx), Kjarri (Bæjarins Bestu, Haukar), Flóki (ÍS), Doddi (Premium) og einhverjir fleiri sem gleymdust að þessu sinni...
Einungis eru tvær umferðir eftir í mótinu og stefnir Forseti að sjálfsögðu á sigur.

mbk,
Óli Rúnar, körfuknattleiksmaður.
 

   7 comments

moon
May 15, 2006   03:43 PM PDT
 
jæja..allt að gerast í blogginu
einar hró
May 11, 2006   01:25 PM PDT
 
er úrslitaleikurinn búinn??
gíggi
April 28, 2006   12:01 PM PDT
 
Gummi Ármanns? Hvurslags andskotans?... Það heiti ég ekki
gíggi
April 28, 2006   12:01 PM PDT
 
Gummi Ármanns? Hvurslags andskotans?... Það heiti ég ekki
SIlla
March 14, 2006   09:25 AM PST
 
Ég er best í heimi því að ÉG KLUKKAÐI ÞIG... hehe....
Óli Bj.
March 11, 2006   12:10 PM PST
 
Sæll það er sad but true að þú talar um eiða 96-97 og fellavöll fyrir 10 árum en það er nú svo merkilegt að eiða 96-97 eru fyrir tíu árum síðan. We're getting old.

Annars er áskorun á þig á síðunni minni. Tussaðu þér nú inn á hana og take it like a man. Sjjjjææælll
ansy gonsalez
March 4, 2006   04:54 PM PST
 
HAEEEEEEE :) eg vona tetta skiljist hja mer.. (erfitt ad skrifa) eg trui ekki ad eg missti ad sidasta leiknum.. stolt af ykkur og til LUKKU:)
Ansy kvedur

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments