Entry: Kóngulóarbandið Monday, January 23, 2006





Einhverntíman á menntaskólaárum mínum var uppi hrátt húmors/rock/pönk-band á austfjörðum sem bar nafnið Kóngulóarbandið.  Ekki nóg með að málfarsvillu væri að finna í nafni hljómsveitarinnar, þar sem þeir töluðu alla jafna um sig sem "kóngulærnar", heldur höfðaði hrá tónlist og hugmyndafræði hljómsveitarinnar ekki sérstaklega til mín á þessum tíma
Ef mér skjátlast ekki þá var það síðla árs 1997 sem þeir gáfu út frumburð sinn, "Andlausir og barnalegir", sem enn er eina útgefna breiðskífa hljómsveitarinnar.  Nafn plötunnar var úrdráttur úr blaðagagnrýni á frammistöðu sveitarinnar frá músíktilraunum fyrr á árinu. 
Logi nokkur Helguson hljómsveitarfélagi minn og vinur til margra ára var/er einn meðlima hljómsveitarinnar og fylgdist maður því með bandinu "með öðru" þegar tími gafst.
 
Þrátt fyrir ótal tilraunir meðlima sveitarinnar til að stofna til slagsmála við mig á árum áður er nú svo komið að ég hef tekið við upptökustjórn hjá bandinu.  Samstarfið hófst síðastliðinn nóvember þegar ég vann með þeim kauðum "Jólalag Kóngulóarbandsins" sem vakti verðskuldaða athygli í jólalagakeppni Rásar 2 þar sem það hafnaði í öðru sæti.  Það ber að athuga að sigurvegari keppninnar forritaði ólöglega "atkvæðavél" á netinu sem var undirstaða nær allra atkvæða hans.
Í gær hófum við svo upptökur á annarri breiðskífu Kóngulóarbandsins í nýinnréttuðu æfinga/hljóðveri Atómstöðvarinnar.  Ég bind þónokkrar vonir um góða plötu og hlakkar mikið til að halda áfram. 
Ég bendi áhugasömum á vefsíðu sveitarinnar; www.konguloarbandid.com .
 
góðar stundir,
 
Óli Rúnar, producent.

   2 comments

Óli Rú
January 24, 2006   12:42 PM PST
 
jubb, hldur betur..
Máni
January 24, 2006   12:30 PM PST
 
Það er nú aldeilis komin tími á aðra "plötu" frá þessum snillingum !!! bíð spenntur eftir henni !

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments