Saturday, November 26, 2005
Nudddauður fótur!


tæklingar innanhúss eru bannaðar!



Varð fyrir þeirri skemmtilegu lífsreynslu að vera tæklaður ansi harkalega á knattspyrnuæfingu um daginn, sem væri kannski ekki frásögu færandi ef þetta hefði ekki verið innanhúsæfing.  Ummál hægri fótar náði um 190% af ummáli þess vinstri fyrstu daganna á eftir.  Eins og sjá má á myndunum hér fyrir ofan fór dágott safn að æðum í sundur við atvikið.  Og þar sem ég er hetja þá gat ég ekki játað að ég væri að drepast í löppinni og kláraði síðustu 20 mínútur æfingarinnar, dælandi blóði út um allan fót.  Þrjóskan borgar sig, eða ekki.


Óli Rú, þrjóskur borgfirðingur.

Posted at 05:50 pm by olirunar
Comments (1)

Thursday, November 17, 2005
Prinzinn mælir með #3




since i´ve been loving you - Led Zeppelin
good vibration - Beach Boys
Love Buzz - Nirvana
new way home - Foo Fighters
god only knows - Beach boys
life on mars - David Bowie
the battel og evermore - Led Zeppelin
change - Deftones
don´t let me down - the Beatles
harvest moon - Niel Young
norwegian wood - the Beatles
sunny afternoon - the Kinks
last goodbye - Jeff Buckley


Prinz grímsson

Posted at 07:46 pm by olirunar
Comments (6)

Sunday, November 13, 2005
well,




maybe there's a god above
but all i've ever learned from love
was how to shoot somebody who outdrew ya...

Posted at 12:58 pm by olirunar
Comments (1)

Thursday, October 27, 2005
allt að koma...


þá hef ég 2 ár og 364 daga til að meika það...


olirunar

Posted at 04:03 pm by olirunar
Comments (12)

Sunday, October 23, 2005
Airwaves

Ég kíkti á gaukinn í gær og skoðaði nokkur bönd...

The (international) Noise Conspiracy


Vínyl
Fyrsta bandið sem ég sá var hljómsveitin Vinyl sem ég skrifaði dágóðan pistil um nú á dögunum.  Það er skemmst frá því að segja að þetta annars stórgóða band fannst mér ekki jafn sannfærandi og á útgáfutónleikunum þar sem að þeir hreynlega fóru á kostum.  Eitthvað lítilsháttar vantaði upp á að þessu sinni.

Jan Mayen
Þetta var í annað sinn sem ég sé Jan Mayen spila.  Bandið er mjög þétt og á mikið af frambærilegum lögum og skemmti mér mikið á fyrri tónleikunum fyrir um 4 mánuðum síðan.  Sérstaklega hefur lag þeirra "Nick Cave" verið í miklu uppáhaldi hjá mér.  Efnilegum böndum leyfist hinsvegar oft margt sem að "góðum" böndum leyfist ekki... svo er alltaf spurningin hvar bönd hætta að vera efnileg og verða að teljast hafa gengið sinn þroskaferil, annað hvort til manns eða músar.  Hvar sem bandið er staðsett á þeim ferli verður Jan Mayen að fara að huga verulega af sviðsframkomunni og "showinu" en annars eru þeir stór góðir.

Ensími
Ensími er frábær hljómsveit.  Þrátt fyrir tæknilega örðuleika sem ollu því að bandið stóð á sviðinu aðgerðalaust mínútum saman áður en þeir byrjuðu (sem er ekki töff) byrjuðu þeir af fullum krafti og náðu strax upp mikilli stemmingu.  Það þarf varla að minnast á að þetta er eitt allra þéttasta bandið á landinu í dag og finnst manni oftar að þeir félagar séu of gallalausir frekar en hitt, ef það er hægt?.. en ég fékk svipaða tilfinningu á tónleikum Placebo og Muse þar sem að ekkert gat er eftir í tíðnisviðinu og allt rosalega pródúserað og vel gert.  Annars er Ensími stórkostleg hljómsveit sem allir ættu að reyna að komast á tónleika með eins oft og þeir geta.

The (international) Noise Conspiracy
Síðasta hljómsveit á svið þetta kvöld var svo sænska nýbylgju-pönk/rock-sveitin The (international) Noise Conspiracy.  Bandið kom mér mikið á óvart og var án efa besta band kvöldsins.  Fyrir utan að sándgæðin og þéttleikinn var með allrabesta móti var það sviðsframkoman sem gerði bandið ógleymanlegt.  Þetta er hinsvegar eitthvað sem erfitt er að útskýra og menn verða bara að sjá.  En ég allavega keypti mér bol!

Óli Rú - bolur.

Posted at 10:50 pm by olirunar
Comments (4)

Wednesday, October 19, 2005
Talkbox Rocks!





Ég fékk loks tilkynningu frá tollinum í dag um að talkboxið sem ég vann á uppboði á ebay fyrir um mánuði síðan er komið.  Útlitið er því ekki gott fyrir restina af bandinu með æfinguna í kvöld, en YESS! þá er bara að byrja að "tala" ofan í öll lög.  (Til nánari útskýringar er Talkbox gítargræja með slöngu sem maður stingur upp í munninn á sér á meðan maður spilar og mótar hin ýmsu "WOWH" hljóð með munninum.  Talkbox er mikið notað af gítaleikurum eins og Slash (GnR&VR), Richie Sambore (Bon Jovi) og Mick Mars (Mötley Crue), svo dæmi séu tekin.  Þekktast er einkennishljóð græjunnar trúlega fyrir hlutverk sitt í laginu Livin on a prayer með Bon Jovi). 
Anyways, er líka að bíða eftir nýjum Bosspedala þannig að nú er gaman..


Óli Rú, tækjaóður!

Posted at 10:49 pm by olirunar
Comments (4)

Wednesday, October 12, 2005
af Rauðu þrumunni

Fyrir um 1 og 1/2 viku síðan var ég á leið minni upp Egilsgötuna (fram hjá Domus Medica) þegar dama nokkur tók þá einkennilegu ákvörðun að aka af bílastæði DM og á kaf inn í hlið Rauðu þrumunnar.  Úr þessu athæfi hennar uppskar ég 2 ónýtar hurðir, beyglað afturbretti og 1 stk. ónýtt dekk.  Í framhaldi var ég látinn fara með bílinn í tjónamat í þjónustustöð VÍS.
Þessa dagana stend ég svo í stappi við VÍS um það hvers virði tjónið sé og var í því sambandi að velta eftirfarandi atriði fyrir mér...

Finnst engum nema mér neitt athugavert við það tjónamat sé almennt framkvæmt af sama aðila og þarf að greiða fyrir tjónið en ekki af óháðum aðila eða jafnvel stofnun?  T.d. í mínu tilfelli er ekið á bílinn minn, ég er tryggður hjá VÍS og það er konan líka sem keyrði á mig.  Það er svo í höndum VÍS að reikna út og ákveða hversu miklum peningum þeir tapa til mín vegna árekstursins.?..  og þar sem að VÍS hefur engann sérstakan áhuga á að græða peninga þá er nú líklegt að ég fá sanngjarnt eða rúmlegt verð fyrir tjónið..?. eða öfugt kannski!.  Þetta er ansi heppileg staða fyrir fyrirtækið.
Í mínu tilfelli er þetta kannski ekki stórmál þar sem ég er frekur, upplýstur um markaðsverð á ónýtum bílum, hrokafullur og tel mig yfir einhverja matsvitleysinga hafinn og mun því ekki láta þá svindla á mér.  Ég er hinsvegar ansi hræddur um að einstaklingur sem er hugsanlega meira "kammó" en ég og  til í að leifa matsmanni með sérfræðiþekkingu á slíkum hlutum að njóta vafans kunni að fá ólíka meðferð.  Ég er til dæmis búinn að fá "firsta tilboð" frá tryggingafélaginu sem ég samþykkti ekki.
Væri ekki nær að mat sem þetta færi fram, samkvæmt lögum, hjá óviðkomandi aðila sem hefur ekki beinna hagsmuna að gæta?  Svona hlutir eiga ekki að vera viðskiptalegs eðlis og snúast um prútt og hark! 


Óli Rú - tjónþoli

Posted at 06:47 pm by olirunar
Comments (5)

Sunday, October 02, 2005
OFmat?




Listi yfir ofmetnustu plötur allra tíma, að mati hlustenda breska ríkisútvarpsins, er svohljóðandi:

1. Nirvana – Nevermind
2. Coldplay – X&Y
3. The Libertines – The Libertines
4. Oasis – Definitely Maybe
5. U2 – The Joshua Tree
6. Radiohead – OK Computer
7. Bítlarnir – Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band
8. Beach Boys – Pet Sounds
9. Sex Pistols – Nevermind the Bollocks
10. The Smiths – The Queen
is Dead

Þetta kemur í raun flest lítið á óvart.  Það fóru margir á mis við Nirvana og skilja lítið í öllum látunum... greyið þeir.  Verð hinsvegar að segja að OK computer, Pet sounds og Sgt. Pepper´s bjóst ég ekki við inná svona lista.

Jóns Inga Arngrímssonur


Posted at 09:49 pm by olirunar
Comments (8)

Wednesday, September 28, 2005
Bandý Rules!


stund milli stríða                                  mynd:Finnur.tk


Á sunnudaginn keppti ég í fyrsta sinn á íslandsmeistaramótinu í Banrý-i.  Það var snilld.  Ég keppti (í boði finns.tk & Soffíu) undir merki UÍA ásamt fríðum flokki spilara.  Þetta var í fyrsta sinn sem ég kem nálægt þessari íþrótt síðan í Menntaskóla.
Það er skemmst frá því að við spiluðum frá 13:00 til 18:20, komumst í úrslit og höfnuðum í 4. sæti íslandsmeistaramótsins.  Þrátt fyrir heimsmet í þynnku var þetta mjög gaman og vil ég þakka bæði með- og mótspilurum fyrir stuðið.
Hér má finna fleiri myndir af liðinu.
lifi byltingin!

Óli Rúnar.

Posted at 08:00 pm by olirunar
Comments (2)

Thursday, September 22, 2005
Finnur.tk klukkaði mig...

fimm atriði sem ekki allir vita um mig:

númer 1
Ég hef gaman af því að vinna... með öðrum orðum; ég er tapsárasti maður í Evrópu!  Ég er svo tapsár að það er hér um bil ómögulegt að taka mig með í nokkurt afþreyingar-sport.  Sem betur fer er ekki hægt að sigra í bíói, annars ætti ég enga vini.

númer 2
Ég hef enn trú á því að ég verði heimsfrægur.  Og það er aðalástæða þess að ég er í hljómsveit og spila á gítar.

númer 3
Ég er forfallinn bíómyndasjúklingur.  Ég lifi mig jafn mikið inn í bíómyndir og ég lifði mig inn í strumpana fyrir nokkrum árum.  Það er það mikil upplifun fyrir mig að sjá bíómyndir að mér leiðist næstum aldrei yfir nokkurri mynd, einhverjum þó.

númer 4
Ég hef meðvitað (trúi því að minnsta kosti) staðnað á því þroskistigi sem ég náði 18 ára.  Þetta þíðir ekki að ég sé jafn heimskur og þröngsýnn og ég var þá.  Satt best að segja hræðist ég það að verða miðaldra og ganga í flíspeysum og inniskóm út um allt... kannski út af því að það yrði uppgjöf gagnvart staðhæfingu númer 2.  Ég hef fulla trú á því að ég nái að halda mér á þessu stigi áfram, allavega þangað til að ég eignast barn.

númer 5
Ég man eftir nánast öllum... fólki sem ég var með í skóla, hef unnið með, spilað með eða stundað með íþróttir.  Til dæmis man ég trúlega eftir öllum sem komu við í Menntaskólanum á Egilsstöðum og Eiðum þann tíma sem ég gekk í þá skóla.  Ég rekst af og til fólk sem ég man eftir úr hinum og þessum skólum og það skilur engan vegin hvernig ég man eftir því og enginn félaga minna hefur hugmynd um hvern ég er að tala um þegar ég minnist á atvikið.   ...ekki nema ég sé hugsanlega geðveiki maðurinn sem geng upp að fólki og þykist þekkja það.?#? hmm...


...ég klukka að þessu sinni Kormák, Guðmund Magna, Sillu systir og Einar Hróbjart; take it away!

Óli Rú

Posted at 02:32 pm by olirunar
Comments (10)

Previous Page Next Page








Contact Me


Blogg:

Finnur Torfi
Óli Björns
Einar Hróbjartur
Sindri & Máni
Ágúst Fannar
Hafþór Snjólfur
Hlynur Gauti
Eyrún Huld
Stebbi Eyjólfs og fél.
Guðmundur Ingi
Guðmundur Magni
Guðmundur Þorkell
Ingi Valur
Björgvin Gunnars
Sveinn Birkir
Örn Ingi
Silla
Kristján Orri
Róbert
Garðar Valur
Jóhann Valgeir
Markús

internet?:

Atómstöðin
Hroðmör
rokk.is
jón.is
Logi Helgu
Hrappurinn
Liverpool

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:


blogdrive