Wednesday, March 01, 2006
Forseti

 

A-riðill Unnir Tapaðir Stig +/-
1  Forseti 4 1 41
2  Hafnarmenn 3 2 17
3  FC Moppa  3 1 11
4  O.B. Valur 1 4 -12
5  Hrafnarnir 1 4 -57
B-riðill Unnir Tapaðir Stig +/-
1  Bananar 4 0 61
2  Glói 3 2 10
3  Vatikanið 3 2 5
4  Stimplarnir 1 4 -33
5  ÍA oldboys 1 4 -43

Í vetur hef ég verið að spila í Körfuboltamóti í Fífunni ásamt valikunni liði afreksmanna undir nafninu Forseti.  Mótið er þannig upp sett að liðunum 10 er skipt upp í tvo riðla, eins og sést hér að ofan, og leikirnir spilaðir á föstudagskvöldum.  Hver leikur er 2 x 16 mínútur.
Í þónokkur ár höfum við félagarnir hist úti á Álftanesi á laugardögum og spilað körfubolta.  Þess má geta  að þessar æfingar hafa verið þær skemmtilegustu körfuboltaæfingar sem ég hef tekið þá í síðan á Eiðum 96 -97ef ekki síðan á Fellavelli fyrir um 10 árum.
Eins og sjá má á töflunni hér að ofan þá erum við efstir í A-riðli og vantar þarna inn síðustu umferð þar sem við slóum stigamet þegar við skoruðum 60 stig í sigri okkar á FC Moppu.  Þess má geta að ég skoraði ekki eina einustu körfu í þessum leik!
Ásamt mér, skipa lið Forseta; Finnur.tk (Huginn Fellum), Raggi Arinbjarna (SE), Stebbi Arinbjarna (SE), Gummi Ármanns (HR, Grindavík),  Sveinn Guð (UMFB), Gutti (SE), Siggi (frændi Gutta?), Skoppi (bronx), Kjarri (Bæjarins Bestu, Haukar), Flóki (ÍS), Doddi (Premium) og einhverjir fleiri sem gleymdust að þessu sinni...
Einungis eru tvær umferðir eftir í mótinu og stefnir Forseti að sjálfsögðu á sigur.

mbk,
Óli Rúnar, körfuknattleiksmaður.
 


Posted at 10:40 am by olirunar
Comments (7)

Monday, February 13, 2006
Ringl


Mynd sem ég fann undir Mosfellsbær á google!?

Leið mín lá um Mosfellsbæ áðan.  Ætti ég vingott við gatnamálastjóra Mosfellsbæjar, reyndi ég að halda vinasamskiptum okkar utan heimilis míns sökum ótta við að þar risi hringtorg eftir geðþótta hans.

Óli Rúnar - crusari


Posted at 05:19 pm by olirunar
Comments (7)

Wednesday, February 08, 2006
Kristján Hreinsson Handknattleiksmaður?

Ég horfði og hlustaði á Kristján Hreinsson Júróvosjónkeppanda greina frá "kæru" sinni í sjónvarpinu fyrir fáeinum dögum. Þar líkti Kristján ákvörðun útvarpsstjóra, að heimila þátttöku Silvíu Nætur í keppninni, við það 'ef dómari í handbolta tæki þá ákvörðun í miðjum leik að leyfa öðru liðinu að skipta inn á eins oft og því sýndist'... en ekki hvað?  bara 5 sinnum?
Stundum er best að tala bara um hluti sem maður hefur vit á.

mbk,
Óli R


Posted at 09:39 am by olirunar
Comments (2)

Monday, January 23, 2006
Kóngulóarbandið



Einhverntíman á menntaskólaárum mínum var uppi hrátt húmors/rock/pönk-band á austfjörðum sem bar nafnið Kóngulóarbandið.  Ekki nóg með að málfarsvillu væri að finna í nafni hljómsveitarinnar, þar sem þeir töluðu alla jafna um sig sem "kóngulærnar", heldur höfðaði hrá tónlist og hugmyndafræði hljómsveitarinnar ekki sérstaklega til mín á þessum tíma
Ef mér skjátlast ekki þá var það síðla árs 1997 sem þeir gáfu út frumburð sinn, "Andlausir og barnalegir", sem enn er eina útgefna breiðskífa hljómsveitarinnar.  Nafn plötunnar var úrdráttur úr blaðagagnrýni á frammistöðu sveitarinnar frá músíktilraunum fyrr á árinu. 
Logi nokkur Helguson hljómsveitarfélagi minn og vinur til margra ára var/er einn meðlima hljómsveitarinnar og fylgdist maður því með bandinu "með öðru" þegar tími gafst.
 
Þrátt fyrir ótal tilraunir meðlima sveitarinnar til að stofna til slagsmála við mig á árum áður er nú svo komið að ég hef tekið við upptökustjórn hjá bandinu.  Samstarfið hófst síðastliðinn nóvember þegar ég vann með þeim kauðum "Jólalag Kóngulóarbandsins" sem vakti verðskuldaða athygli í jólalagakeppni Rásar 2 þar sem það hafnaði í öðru sæti.  Það ber að athuga að sigurvegari keppninnar forritaði ólöglega "atkvæðavél" á netinu sem var undirstaða nær allra atkvæða hans.
Í gær hófum við svo upptökur á annarri breiðskífu Kóngulóarbandsins í nýinnréttuðu æfinga/hljóðveri Atómstöðvarinnar.  Ég bind þónokkrar vonir um góða plötu og hlakkar mikið til að halda áfram. 
Ég bendi áhugasömum á vefsíðu sveitarinnar; www.konguloarbandid.com .
 
góðar stundir,
 
Óli Rúnar, producent.

Posted at 12:07 pm by olirunar
Comments (2)

Thursday, January 19, 2006
Keyrt aftan á þrumuna

Ég hef ekki tíma til að skrifa heljarinnar færslu í hvert skipti sem það er keyrt á bílinn minn.  Í gær var keyrt aftan á hann á rauðu ljósi.  Eins og glöggir lesendur muna eru nokkrar vikur síðan að dúndrað var inn í hliðina á honum.

mbk,
Óli Rúnar, í 100% rétti.


Posted at 09:53 am by olirunar
Comments (5)

Monday, January 16, 2006
Powerbook G4

Ég lét loks verða af því að versla mér Mac fartölvu.  Fyrir valinu varð að sjálfögðu það besta sem fyrirtækið býður uppá í dag; Powerbook G4, high resolution, með 1,67 GHz örgjörva og 1,5 g. í vinnsluminni. 
Tölvan státar að allskonar fítusum sem eru misgagnlegir og ég skil enn misvel í.  Til dæmis er innbyggður ljósnemi í borði hennar og breytir hún skjástillingum á borð við lightness og contrast eftir ljósmagni umhverfi síns hverju sinni, auk þess sem að hún kveikir ljós í lyklaborðinu ef það er orðið of dimmt til að lesa á það.  Mekilegt.
Ég hef nú unnið með Mac í öllum stærri stúdeóum landsins en get þó ekki sagt að ég hafi mikla kunnáttu á þær og reikna því með einhverjum minniháttar aðlögunartíma.  Svo á eftir að koma í ljós hvort ég verði eins forfallinn aðdáandi þessara talva og flestir kaupendur þeirra og vilji aldei aftur sjá PC.  Við sjáum til.

mbk,
Óli Rúnar, nörd.


Posted at 05:16 pm by olirunar
Comments (3)

Tuesday, January 10, 2006
Rolling Stone - 20 bestu plöturnar

Hér hafið þið lista yfir 20 bestu plötur allra tíma, að mati blaðamanna tónlistartímaritsins Rolling Stone, sem birtur var á dögunum.

 

 

 

1.  Sgt. Pepper's Lonely Hearts Club Band                The Beatles          1967

2.  Pet Sounds                                                           Beach Boys           1966

3.  Revolver                                                               The Beatles           1966

4.  Highway 61 Revisited                                            Bob Dylan             1965

5.  Rubber Soul                                                          The Beatles          1965

6.  What´s Going On                                                   Marvin Gaye         1971

7.  Exile On Main St.                                                  Rolling Stones      1972

8.  London Calling                                                      The Clash             1979

9.  Blonde On Blonde                                                  Bob Dylan            1966

10. The Beatles (The White Album)                            The Beatles           1968

11. The Sun Session                                                    Elvis Presley         1976

12. Kind of Blue                                                           Miles Davis           1959

13. Velvet Underground & Nico                                    Velvet Undergr.    1967

14. Abbey Road                                                          The Beatles       1969

15. Are You Experienced?                                           Jimi Hendrix Ex.   1967

16. Blood On The Tracks                                              Bob Dylan            1975

17. Nevermind                                                               Nirvana                1991

18. Born To Run                                                           B. Springsteen      1975

19. Astral Weeks                                                            Van Morrison       1968

20. Thriller                                                                   M. Jackson            1982

 

Það vakti áhuga minn að ríflega helmingur þessara platna og þar af efstu 5, eru gefnar út á sjöunda áratug síðistu aldar. Ennfremur er áhugavert að Bítlarnir eiga 20% af listanum.  Mest selda plata allra tíma vermir 20 sæti listans.

 

síðar,

Óli


Posted at 10:40 am by olirunar
Comments (10)

Friday, January 06, 2006
Gleðilega árið!

þá er komið að því... ég hef ákveðið að blogga!
Einföld ástæða er fyrir bloggleysinu síðustu vikur þar sem tíminn hefur verið verðmeiri undanfarið en oftast áður.  Að vanda komu jólaprófin í byrjun des og kláruðust að þessu sinni ekki fyrr en rétt áðan.  Ég var í 120% námi á síðustu önn og er með meðaleinkunnina 8,1 úr fimm  af þeim sex áfönugum sem ég nam en eina hef ég ekki enn fengið.  Ég er nokkuð sáttur við það í ljósi þess að ég var í um 75% fastri vinnu auk spilamennsku og lausastaða hér og þar.

Ég sendi engin jólakort í ár, frekar en önnur, en vona að maður fari nú að hafa þroska til að skrifa svoleiðis sem fyrst.  Ég vil þakka fyrir þau kort sem mér bárust og upplýsa að ég hafði gaman af.

Ég vona að þið hafið haft það sem best um jólin og óska ykkur öllum farsældar á nýju ári.  Þakka liðið.

mbk,
Óli Rúnar


Posted at 12:32 pm by olirunar
Comments (5)

Friday, December 16, 2005
Atómstöðin

hin nýja Atómstöð

Atómstöðin hefur orðið fyrir þónokkrum breytingum frá því ég skrífaðu um bandið síðast.  Ingólfur nokkur Magnússon hefur sagt skilið við sveitina og kann ég honum bestu þakkir fyrir samstarfið.  Í hans stað mundar nú bassann maður að nafni Hrói og er hann fagur með eindæmum og stendur við hlið mér á myndinni hér að ofan.  Hróa þekktum við áður úr tónlistaheiminum þar sem hann hefur starfað sem upptökumaður, upptökustjóri og hljóðmaður um þónokkuð skeið.
Öðrum gítarleikara hefur svo verið bætt í safnið og er bandið nú í fyrsta sinn fullskipað fimm manna rokkband.  Gítarleikari þessi er enginn annar en Óttar Brjánn Eyþórsson fyrrum gítarleikari Mortus frá Keflavík og Bensíntitta dauðans.  Óttar er nýlega snúinn frá Danaveldi þar sem hann lék á gítar og stúderaði framúrstefnu og frumleika tónlistasköpunar.
Bandið vinnur um þessar mundir að sinni annari breiðskífu og útgáfu og dreifingu á henni á alþjóðamarkaði.

Atómstöðin mun leika í Valaskjálf á Egilsstöðum þann 26. desember (2. í jólum)
Við vonumst að sjálfsögðu eftir því að sjá sem flesta þar!

Hrói varð svo fyrir því óláni að þrí-handlegsbrottna í óeirðum á Gauk á stöng fyrir viku síðan og mun því ekki spila á bassa næstu 2 vikur.  Kallin er hinsvegar kominn með stálplötu í hendina og er hinn hressasti.
Ingólfur magnússon hefur boðið fram krafta sína til aðstoðar á meðan bein Hróa gróa, og kunnum við honum bestu þakkir fyrir.  Atómstöðin verður því að 4/5 austfirskt band á annan í jólum í Valaskjálf.

Ég bendi áhugasömum á síðuna www.myspace.com/atomstation

Prinsinn

 


Posted at 02:54 pm by olirunar
athugasemdir

Sunday, November 27, 2005
Kítl kjaftæði

...en þar sem að allir elska að tala um sjálfa sig tek ég að sjálfsögðu þátt.

      1.   Sjö hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey

  • klára b.s. í viðskiptafræði
  • klára master í markaðsfræði
  • gefa út geisladisk á heimsvísu
  • eignast afkvæmi
  • heimsækja stóran hluta heimsins
  • ná 6% fituhlutfalli
  • læra eina bardagalist

     2.    Sjö hlutir sem ég get

  •  spilað lokasólóið í crossroads á gítar
  •  útsett lög, raddir og strengi í hausnum á mér
  •  lyft yfir 120% af eigin þyngd í bekkpressu
  •  hlaupið miklu lengra en ég nenni
  •  verið gjörsamlega óþolandi í samskiptum
  •  lært flest ef ekki allt
  •  talað endalaust um sjálfan mig

     3.    Sjö hlutir sem ég get ekki

  • lifað eðlilegu lífi
  • skilið að fólki finnist ekki gaman að heyra frá mér blindfullum um miðja nótt
  • hætt að hreyfa mig
  • vaknað til að mæta í skólann
  • tekið tapi eins og maður
  • sofið hjá karlmanni
  • drukkið bara 2 bjóra


    4.    Sjö hlutir sem heilla mig við hitt kynið

  • Útgeislun 
  • Sjálfsöryggi
  • fas 
  • húmor 
  • gáfur 
  • vöxtur 
  • bros

      5.    Sjö frægar sem heilla

  • Halle Berry 
  • Gwen Stefani 
  • Jessica Alba
  • Beonce Knowles
  • Heiðar Austmann
  • Erika Eleniak  (uppeldislegar orsakir, eldist ekki sem skildi)
  • gellan í cryin` game 

     6.    Sjö orð eða setningar sem ég nota mikið

  • ok
  • af hverju?
  • hvað græði ég á því? 
  • hvar er rokkið í því? 
  • shit 
  • sendu helvítis boltann maður!
  • þetta er spurning um að kompa bara miðjuna niður og splitta henni ca. korter hvoru megin í von um að söbbinn kötti geitið og annað sitji eftir nema þar sem 500 riðin haldast stabíl í 4-6 desibelum, með þessu ætti ambíansinn að nást inn á álagstímum.

        7. Sjö hlutir sem ég sé einmitt núna

  • Tölvuna
  • Finn.tk 
  • 2 þumalputta  
  • 2 litlaputta
  • 2 vísifingur 
  • 2 baugfingur 
  • dáið fólk

ég klukka engann þar sem að þessháttar blogg geta að svo takmörkuðu leiti fjallað um mig og stríða því á móti vilja mínum.

góðar stundir...

Óli Rúnar

 


Posted at 09:00 pm by olirunar
Comments (7)

Next Page








Contact Me


Blogg:

Finnur Torfi
Óli Björns
Einar Hróbjartur
Sindri & Máni
Ágúst Fannar
Hafþór Snjólfur
Hlynur Gauti
Eyrún Huld
Stebbi Eyjólfs og fél.
Guðmundur Ingi
Guðmundur Magni
Guðmundur Þorkell
Ingi Valur
Björgvin Gunnars
Sveinn Birkir
Örn Ingi
Silla
Kristján Orri
Róbert
Garðar Valur
Jóhann Valgeir
Markús

internet?:

Atómstöðin
Hroðmör
rokk.is
jón.is
Logi Helgu
Hrappurinn
Liverpool

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:


blogdrive